Tíundi dagur í fæðingarorlofi senn á enda. Ljúf helgi á enda og "vinnuvikan" tekin við. Ásdís María blómstrar, er bara yndislegt ungabarn sem sefur út í eitt! Hún rétt svo vaknar til að drekka, og kannski tvisvar á dag leyfir hún móður sinni aðeins að spjalla og horfa í augun á sér, en hún nennir því ekkert lengur en í 10 mínútur í senn- þá þarf hún að leggja sig :)
Eysteinn Ari er aðeins farinn að færa sig upp á skaftið, tekur sig til og hristir vögguna af fullum krafti þegar hún liggur í henni, reynir að lauma allskonar dóti ofan í vögguna eða syngja hátt og spila á gítar í eyrað á henni !
So far er ekkert mikið mál að vera með þau tvö, hún liggur bara og sefur. Það er hins vegar farið að hræða mig smá hvernig þetta verður eftir nokkra mánuði þegar hún vakir meira og þarf sína athygli í samkeppni við hann og hans kröfur ! Úff - það verður TÖFF TÖFF TÖFF ! Hahahaa :)
mánudagur, febrúar 08, 2010
fimmtudagur, febrúar 04, 2010
2 ára og sjálfbjarga ?

Eysteinn Ari fékk Ellu frænku í heimsókn áðan. Hún er jafngömul honum en hætt með bleyju. Þau voru voða góð að leika, en þegar þau voru með smá öskur og læti var ákveðið að tékka á þeim. Komið var að þeim inni á baðherbergi þar sem hún var allsber að hífa upp um sig buxurnar en Eysteinn Ari með koppinn í fanginu, fullan af pissi að gera sig líklegan til að hella pissinu í klósettið !
-nei, þau þurftu sko enga hjálp við að fara á klósettið !
Annars gengur ennþá mjög vel að díla við EA með litla systur inni á heimilinu. Hann er bara voða spenntur fyrir henni, er alltaf að tékka á henni í vöggunni og færa henni dót, en er ekkert fúll þó hún sé mikið í fanginu á mér. Ætli hann sé ekki akkúrat á réttum aldri, aðeins of ungur fyrir afbrýðisemi...
Ég veit samt ekki hvort honum finnst merkilegra, litla systir eða hestarnir hans afa. Hann talar mun meira um hestana, er þvílíkt upp með sér eftir að hafa prófað að setjast á bak og láta teima undir sér ! Hann talar ekki um annað...
þriðjudagur, febrúar 02, 2010
Apakötturinn

Nú er apakötturinn alveg mættur á svæðið og MJÖG mikilvægt að vanda málfarið á heimilinu ! Eysteinn Ari grípur allt og apar eftir okkur !
Við matarborðið áðan;
ÉG: Díses, brjóstin á mér eru að springa - Helgi nenniru að taka barnið, ég er alveg að deyja..
Eysteinn Ari: Nei Mamma, ekki deyja !!
< reyndar engar líkur á því að hann viti hvað það þýðir að DEYJA>
Já, það er sem sagt mætt MJÓLK á svæðið og ekki í neinu litlu magni! úff....þetta er svo steikt fyrirbæri þessi brjóstagjöf - ólýsanlegt hvað ég er samt glöð að hafa dílað við þetta áður, í fyrsta skipti var þetta virkilega ógnvænlegt fannst mér ! haha.....
5 daga skoðun á morgun- spennandi að sjá hvað daman er orðin þung :)
sunnudagur, janúar 31, 2010
Daman mætt !

Já, loksins kom hún þessi elska. Vaknaði með massífa verki klukkan 4 á föstudagsmorgun, var mætt uppá deild klukkan 5 og daman kom í heiminn 9.16 :)
Get ekki líst því hvað ég er fegin að þetta sé búið :)
Daman gullfalleg, eftirmynd af bróður sínum, nema örlítið stærri og feitari ! Nefndum hana strax á föstudaginn og fékk hún nafnið Ásdís María. Nafnið er í höfuðið á tveimur frænkum mínum, Ásdís er systir mömmu og María er systir pabba - tvær yndislegar frænkur sem eru eðlilega glaðar með nöfnu sína :)
Komnar myndir á síðuna hans Eysteins Ara- sem er nú síða þeirra beggja ...
þriðjudagur, janúar 26, 2010
8 dagar fram yfir settan dag....
Á áttunda degi og geðheilsan ágæt ennþá ! Ákvað í dag að hætta að bíða- geri bara ráð fyrir að ganga með dömuna í 42 vikur- og ef hún kemur fyrr, þá er það bara bónus :) Markmiðið er sem sagt að gefa Telmu þessa fínu afmælisgjöf þann 01.02.10 - ætli hún verði þá ekki bara skírð Telma !
EM í handbolta er að gera góða hluti- fínt að hafa eitthvað í gangi á daginn. Strákarnir okkar eru að gera frábæra hluti - ef ég væri ekki komin á steypinn myndi ég ekki hika við að íhuga ferð til Austurríkis um helgina !!! Það væri bara gaman að fara og sjá undanúrslitin, já og ÚRSLITIN! Eins og alltaf hef ég óbilandi trú á þeim og spái verðlaunasæti :)
Ég ætla að skrá það hér hjá mér - svo ég muni það næst, þegar maður á von á sínu öðru eða þriðja barni (Eða fjórða !) þá ætti að vera skylda að hætta að vinna 4 vikum fyrir settan dag. Það þarf gífurlega orku til að sinna þessum börnum - ég er nokkuð góð líkamlega en finn þvílíkan mun að vera kasólétt og EKKI í vinnu, heldur en kasólétt og í vinnu líka! Orkan klárast á milli 8 og 16 og pirrupúkinn tekur við þegar komið er heim !
Þessa dagana er ég að vakna með strákunum klukkan 8, klæði EA og kem honum út með pabba sínum. Svo er ferðinni haldið aftur upp í rúm þar sem ég held mig til hádegis í fastasvefni :) Svo fer dagurinn í það að svara símtölum og sms-um og halda ró á mannskapnum í kringum mig ! hahaha... :)
Uppáhaldsvinkona mín sem gat varla haldið hátíðleg jól því hún vissi að ég væri ekki búin að þvo ungbarnafötin og undirbúa komu barnsins - hún getur verið mjög stolt af mér í dag ! Ég hefði aldrei trúað sjálfri mér til að hafa hlutina jafn tilbúna og þeir eru ! haha.... Hér er sko búið að þvo allt, strauja, raða, sortera, skrúbba og skúra.... :) Verst að þurfa alltaf að þrifa aftur og aftur svona vel svo það verði nú allt spikk og span þegar daman kemur heim :)
Over and Out. Þetta er pottþétt ekkert síðasta bloggið frá húsmóður með eitt barn!

föstudagur, janúar 22, 2010
"há-all"
Ég: Hvað fékkstu að borða á leikskólanum í dag ?
EA: "há-all" svarar minn með glott á andlitinu
ÉG: Hákarl ?
EA: JÁ !
Ég: Var hann góður ?
EA: JÁ ! há-all skítinn (skrítinn)
Eitt er víst að þessi matar-áhugi kemur úr tengdafjölskyldunni minni sem borðar mikinn þorramat :) Ég komst upp með að smakka ALDREI hákarl eða hrútspunga eða svið og sé ekki fyrir mér að ég muni nokkurn tíma smakka það !
Mér fannst því frekar fyndið þegar vinkonurnar á leikskólanum sögðust hafa stoppað EA í hákarlnum því hann vildi bara meira og meira !!!!
-Jæja, nú styttist vonandi í einn svona lítinn unga inn á heimilið - ætli hún verði lík gullfallega bróður sínum ? :)

sunnudagur, janúar 17, 2010
Biðin eftir nýju barni
Settur dagur á morgun - 18.janúar. Ég var smá að vonast eftir barni í dag en það er ekkert að gerast. Ég man ekki eftir þessum tíma fyrir 2 árum, EA mætti bara á svæðið á réttum degi og allir glaðir. Núna hins vegar er þetta furðulegra því lífið er mun meiri rútína og meira vesen að þurfa að stökkva á fæðingardeildina hvenær sem er sólarhringsins og stimpla sig út af heimilinu! Það myndi henta ágætlega að vita bara hvenær daman ætlar að mæta ! EA er ennþá ekkert að skilja í þessu og þegar hann er spurður (12 x á dag) hvað sé í maganum á mömmu segir hann iðulega "KISA". :) Lítið barn er bara eitthvað fyrirbæri sem hann kannast ekki við....hvað þá þegar fólk talar um LITLA SYSTUR!
Annars er ég bara að njóta hverrar mínútu með honum þessa dagana, maður mun víst eiga minni tíma fyrir hann næstu daga... Hann er að blómstra líkt og undanfarnar vikur, talar og talar og talar ! Núna segir hann öll orð, en eðlilega eru mörg mjög óskýr ! Foreldrarnir eru því komnir í smá átak til að hætta að nota orðin shit, fuck ofl ! hehe..... Hann apar ALLT eftir okkur ! Ég var að tala um skítakulda um daginn og nú segir hann; "mamma- skítalatt úti"....
Jæja, símanúmerið á fæðingardeildinni er komið í símaskránna, bílstóllinn frammi í andyri og hrein og nýstraujuð barnaföt í tösku.... Nú þarf ég bara að strauja dæmið utan um vögguna + sængurfötin og þá er allt eins og það á að vera :)
Vonandi verður það 2 barna móðir sem bloggar hér næst !

Subscribe to:
Posts (Atom)